FRÍ SENDING Á DROPP STAÐI YFIR 8.000 KR

Gullkorn Design

Vetrarúlpa - Dark Denim

10.794 kr 17.990 kr

Vetrarúlpa með mörgum tæknilegum og hagnýtum eiginleikum. Hún er úr vönduðu efni og er hugsað fyrir öllum smáatriðum. Úlpan er mjúk og lipur, og er hönnuð með hreyfingu, leik og þægindi barnsins í huga. Hún er með 20.000 g öndun og 20.000 mm vatnsheldni sem er eitt það mesta á markaðnum í dag. Hún er með hlýrri Repreve© einangrun sem er endurunnin úr plastflöskum. Einangrunin svipar til dúns en heldur sér betur eftir þvott. Með alla þessu frábæra eiginleika helst barnið bæði þurrt og hlýtt þó það leiki í langan tíma úti í bleytu og kulda. 

360° endurskin þannig að barnið er sjáanlegt frá öllum hliðum í vetrarmyrkrinu. Tveir vasar eru að framan og einn vasi að innanverðu. Úlpan er með lycra stroffi sem heldur hitanum inni og kemur í veg fyrir að vindur eða snjór komi inn í ermina. Hágæða rennilás. Hettan með skyggni, hægt er að taka hettuna af. 

Útifötin frá Gullkorn eru afar endingargóð og eru gerð til að ganga barna á milli. Aukastykki af efni (10x10 cm) fylgir með úlpunni svo hægt sé að gera við hana ef svo óheppilega vildi til að hún rifni.

Snjóbuxur eru fáanlegar í stíl við úlpuna!

Tæknilegir eiginleikar:

100% pólýester
20.000 mm vatnsheldni
20.000 g öndun 
Límdir saumar
Repreve© einangrun
ECO Bionic Finish
35.000 í Martindale núningsprófun

Úlpan er meðhöndluð með flúorlausri gegndreypingu og því gæti vatnshelda húðin minnkað eftir marga þvotta. Hægt er að gegndreypa vöruna aftur til að lengja líftímann. 

Skráðu þig á póstlistann okkar

Skráðu þig á póstlistann til að fá að vita af nýjungum, tilboðum og afsláttum