FRÍ SENDING Á DROPP STAÐI YFIR 8.000 KR

Gullkorn Design

Vatnsheldur anorakkur - Dark Blue

6.396 kr 15.990 kr

Léttur vind- og vatnsheldur anorakkur úr vönduðu og þægilegu efni. Anorakkurinn er með ýmsum úthugsuðum tæknilegum smáatriðum þannig að barninu líði sem best og þannig að endingin sé góð. Anorakkurinn er alveg vatnsheldur og andar vel, fullkominn jakki fyrir vor, sumar og haust - hvort sem er í leikskóla/skóla, útivist eða bæjarrölt.

Rennilás í hálsmáli og á annari hliðinni upp að handakrika, sem auðveldar barninu að fara í og úr flíkinni. Hægt er að þrengja mittið að innanverðu. Skyggni er framan á hettunni sem skýlir andlitinu frá regni og sól. Hægt er að renna hettunni af og geyma innan í kraganum. Gott endurskin sem tryggir að barnið sjáist í myrkri. Stór vasi á bringunni, og einnig tveir vasar á sitthvorri hliðinni. Anorakkurinn er með hágæða rennilásum sem þola mikla notkun. 

Efniseiginleikar:
Ytra efni: 94% pólýester, 6% elastan 
Innra lag: 100% bómull á innanverðum búk, 100% pólýester innan í ermum.

Vatnsheldni: 10.000 mm
Öndun: 5.000 g/m2/24t

Skráðu þig á póstlistann okkar

Skráðu þig á póstlistann til að fá að vita af nýjungum, tilboðum og afsláttum