
Gullkorn Design
Gullull hálskragi - Lavender
3.490 kr
Mögulega mýksta ull í heimi! Gullull línan er létt, mjúk og andar vel. Kraginn er úr merino ull að utan og viskós úr bambus að innan, og er því mjög hlý og þægileg fyrir barnið.
Innra lagið er saumað yfir á köntum þannig að ullin er ekki í snertingu við barnið ef það er með viðkvæma húð. Fer vel í þvotti ef farið er eftir þvottaleiðbeiningum og getur auðveldlega gengið á milli barninu ef vel er farið með flíkina.
Kraginn er búinn til úr afgangsefni sem fellur til við framleiðslu á Gullull línunni. Framleiðslan minnkar því verulega sóun á textílefnum.
Efni (Oeko-Tex 100 vottað):
45,31% merino ull að utan, 54,69% viskós úr bambus að innan