FRÍ SENDING Á DROPP STAÐI YFIR 8.000 KR

Gullkorn Design

Hlífðarbuxur - Lavender Pink

3.996 kr 9.990 kr

Flottar hlífðarbuxur úr vindheldu og vatnsfráhrindandi efni með góðri teygju. Buxurnar eru léttar og anda vel, og er því frábærar í mildu vor- og haustveðri. Þær eru fullkomnar til notkunar í náttúrunni hvort sem það er á fjöllum eða við sjó, og henta vel í roki og/eða örlítið röku veðri.

Endurskinsmerki á fótleggjum. Stillanlegt mitti. Buxurnar eru úr vönduðu efni og er hugsað fyrir öllum smáatriðum. Þær eru hannaðar með hreyfingu, leik og þægindi barnsins í huga.

Jakki fáanlegur í stíl. Útifötin frá Gullkorn eru afar endingargóð og eru gerð til að ganga barna á milli.

Tæknilegir eiginleikar:

94% pólýester, 6% spandex
Vind- og vatnsfráhrindandi

Létt softshell
ECO Bionic Finish

Buxurnar eru meðhöndlaðar með flúorlausri gegndreypingu og því gæti vatnsfráhrindandi húðin minnkað eftir marga þvotta. Hægt er að gegndreypa vöruna aftur til að lengja líftímann. 

Skráðu þig á póstlistann okkar

Skráðu þig á póstlistann til að fá að vita af nýjungum, tilboðum og afsláttum