FRÍ HEIMSENDING YFIR 12.000 KR!

Filibabba

Kapok Premium ungbarnahreiður - Muddly Blue

22.990 kr

Hágæða Premium ungbarnahreiður úr lífrænt vottaðri bómull með náttúrulegri og ofnæmisfrírri kapok fyllingu í bæði kantinum og dýnunni. Hreiðrið umlykur barnið og veitir því aukið öryggi og þægindi. Hægt er að nota það ofan í vöggu, rimlarúmi, vagni, rúmi foreldra eða sem aukasvefnstaður fyrir barnið. Hreiðrið er eigulegt og hægt er að láta það ganga áfram milli barna.
.
Hentugt fyrir börn á aldrinum 0-6 mánaða. Nýtist mjög vel með nýbura sem mörg hver sofa stóran hluta af sólahringnum. Þá er hreiðið notalegur svefnstaður fyrir barnið og hægt að hafa á ýmsum stöðum á heimilinu. 
.
Hreiðrið er með leðuról er á endanum sem er fest með smellum. Þetta hreiður er með þann möguleika að hægt er að renna kantinum af dýnunni, þannig að eftir að barnið stækkar upp úr hreiðrinu er hægt að nota kantinn sem "orm" í rúminu og nýtist sem einskonar stuðkantur sem umlykur barnið og heldur áfram að veita því öryggi. Einnig getur dýnan nýst t.d. í vagninn.
.
KapokKapok hefur þá eiginleika að vera 100% náttúrulegt efni án eiturefna. Það er ofnæmisvænt og bakteríudrepandi. Það er einangrandi og heldur vel hita, en andar jafnframt vel og hleypir frá sér raka, þannig það hentar bæði vel í köldu og heitu lofti.
Kapok er unnið úr trjám í regnskógum í Asíu og Suður Ameríku. Því er safnað ári eftir ár án þess að fella trén, því er framleiðslan sjálfbær og varðveitir regnskógana.
.
Stærð: 85x50 cm (ytra mál), 75x35 cm (innra mál)

Þykkt á dýnu: 6 cm

Efni: 100% lífræn bómull (ytra lag), kapok (innra lag)

Þvottaleiðbeiningar á dýnuáklæði: Smellið leðurbandinu af og rennið kantinum frá dýnunni. Takið áklæðið af dýnunni. Dýnuáklæðið má þvo við 30° í þvottavél. Má setja í þurrkara.

Þvottaleiðbeiningar á hreiðrinu: Þar sem kapok trefjarnar eru náttúrulegar og eru með bakteríudrepandi og ofnæmisfría eiginleika þá þurfa þær ekki eins mikinn þvott og önnur efni. En við þvott þurfa þær sérstaka þvottameðhöndlun. Gott er að setja hreiðrið í þurrkarann í 15-20 mínutur á um 4 mánaða fresti til að kapok trefjarnar haldist loftmiklar og mjúkar. Ef þú þarft að þvo hreiðrið, þvoðu það á 30°, notaðu þvottaefni án ensíma, notið ekki mýkingarefni. Nauðsynlegt er að vinda á miklum snúningi til að ná sem mestu vatni úr kapok trefjunum því þær halda miklum raka í sér. Setjið í þurrkara strax eftir þvott, þurrkið ekki með öðrum hlutum. Þurrkið í 30 mínútur með því að nota tímastillingu á þurrkaranum frekar en sjálfvirkt þurrkprógram. Takið þá hreiðrið úr og leyfið að kólna í um 30-60 mínútur. Endurtakið þá ferlið, 30 mínútur í þurrkaranum og taka svo út í 30-60 mínútur. Þetta þurrkferli gæti þurft að endurtaka um 3-4 sinnum þangað til hreiðrið hefur náð stofuhita og orðið þurrt. Notið ekki tennisbolta við þurrkunina. Kapok trefjarnar geta farið í litla klumpa sem er hægt að losa um með því að toga þá í sundur. Ef hreiðrið er of stórt fyrir þvottavélina gæti þurft að fara með það í hreinsun.

Öryggisatriði: Leggið ávallt barnið með höfuðið andstæðu megin við opnanlega endann, þannig að fæturnar séu þeim megin sem hreiðrinu er lokað. Hreiðrið skal nota á flötu undirlagi. Haldið ekki á hreiðrinu meðan barnið liggur í því. Fylgist með barninu þegar hreiðrið er notað.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Skráðu þig á póstlistann til að fá að vita af nýjungum, tilboðum og afsláttum