
Dét Denmark
Pointelle skriðsokkar - Soft Rose
1.890 kr
Sokkar úr mjúkri lífrænni bómull með fínlegu pointelle punktamynstri sem gefur sokkunum fallegt yfirbragð. Sokkarnir eru með góðri teygju og í góðu sniði sem helst vel á fótunum. Sokkarnir eru með stömu mynstri á iljum og rist sem auðveldar barninu að skríða, standa upp og ganga á sleipu yfirborði. Efnið er Oeko-Tex vottað og því án skaðlegra efna.
Efni: 80% lífræn bómull, 17% polyamide, 3% elastane
Þvottur: 30°, mælt er með að þvo ávallt á röngunni. Má ekki fara í þurrkara.