FRÍ SENDING Á DROPP STAÐI YFIR 8.000 KR

Gullkorn Design

Skelbuxur - Rose

5.196 kr 12.990 kr

Hlífðarbuxur með mörgum tæknilegum og hagnýtum eiginleikum. Buxurnar eru með 20.000 mm vatnsheldni, límda sauma og 20.000 g öndun sem er eitt það mesta á markaðnum í dag. Þær eru úr slitsterku efni sem er á sama tíma ótrúlega mjúkt og lipurt. Flísfóður á setusvæði fyrir meiri hlýju og þægindi. Með alla þessu frábæra eiginleika helst barnið bæði þurrt og hlýtt þó það leiki í langan tíma úti í bleytu. Þær eru hannaðar með hreyfingu, leik og þægindi barnsins í huga. 

360° endurskin þannig að barnið er sjáanlegt frá öllum hliðum. Buxurnar eru með hliðarvasa fyrir börn í fjársjóðsleit. Buxurnar lokast með rennilás og smellu efst. Axlarólar eru stillanlegar, og er einnig hægt að taka þær af. Ef ólarnar eru teknar af er hægt að stilla mittisummálið með frönskum rennilás ásamt bandi.

Neðst á skálmunum er rennilás sem auðveldar að koma buxunum yfir breiða skó og stígvél. Hægt er að læsa rennilásnum í þeirri stillingu sem hentar með því að snúa honum. Þetta tryggir að skálmarnar haldast á réttum stað svo að rennilásinn renni ekki sjálfkrafa upp eða niður. Rennilásar á buxunum eru í miklum gæðum.

Aukastykki af efni (10x10 cm) fylgir með buxunum svo hægt sé að gera við þær ef svo óheppilega vildi til að þær rifni.

Jakki fáanlegur í stíl. Útifötin frá Gullkorn eru afar endingargóð og eru gerð til að ganga barna á milli.

Tæknilegir eiginleikar:

100% pólýester
20.000 mm vatnsheldni
20.000 g öndun 
Límdir saumar
Martindale 50.000 (núningspróf)
ECO Bionic Finish

Buxurnar eru meðhöndlaðar með flúorlausri gegndreypingu og því gæti vatnshelda húðin minnkað eftir marga þvotta. Hægt er að gegndreypa vöruna aftur til að lengja líftímann. 

Skráðu þig á póstlistann okkar

Skráðu þig á póstlistann til að fá að vita af nýjungum, tilboðum og afsláttum