FRÍ HEIMSENDING Á KAUPUM YFIR 12.000 KR!

Gullkorn Design

Skelgalli - Pale Green

19.990 kr

Skelgalli með mörgum tæknilegum og hagnýtum eiginleikum. Gallinn er með 20.000 mm vatnsheldni, límda sauma og 20.000 g öndun sem er eitt það mesta á markaðnum í dag. Hann er úr slitsterku efni sem er á sama tíma ótrúlega mjúkt og lipurt. Með alla þessu frábæra eiginleika helst barnið bæði þurrt og hlýtt þó það leiki í langan tíma úti í bleytu. Gallinn er hannaður með hreyfingu, leik og þægindi barnsins í huga. 

360° endurskin þannig að barnið er sjáanlegt frá öllum hliðum. Stillanleg mittisteygja að innanverðu. Gallinn er með vasa fyrir börn í fjársjóðsleit. Skyggni er framan á hettunni sem skýlir andlitinu frá regni og sól. Hægt að taka hettunni af. Lycra stroff sem heldur hitanum inni og kemur í veg fyrir að vindur eða bleyta komi inn í ermina. Hágæða rennilás. 

Neðst á skálmunum er rennilás sem auðveldar að koma gallanum yfir stígvél. Hægt er að læsa rennilásnum í þeirri stillingu sem hentar með því að snúa honum. Þetta tryggir að skálmarnar haldast á réttum stað svo að rennilásinn renni ekki sjálfkrafa upp eða niður. Stillanlegar gúmmíteygjur eru neðan á gallanum sem fara undir skósólann.

Aukastykki af efni (10x10 cm) fylgir með svo hægt sé að gera við ef svo óheppilega vildi til að gallinn rifni.

Útifötin frá Gullkorn eru afar endingargóð og eru gerð til að ganga barna á milli.

Tæknilegir eiginleikar:

100% pólýester
20.000 mm vatnsheldni
20.000 g öndun 
Límdir saumar
Martindale 50.000 (núningspróf)
ECO Bionic Finish

Gallinn er meðhöndlaður með flúorlausri gegndreypingu og því gæti vatnshelda húðin minnkað eftir marga þvotta. Hægt er að gegndreypa vöruna aftur með vatnsheldu spreyi til að lengja líftímann. 

Skráðu þig á póstlistann okkar

Skráðu þig á póstlistann til að fá að vita af nýjungum, tilboðum og afsláttum