FRÍ SENDING Á DROPP STAÐI YFIR 8.000 KR

Mikk-line

Thermo sett - Rubber

5.990 kr

Thermo sett sem samanstendur af jakka og buxum. Thermo hefur þann eiginleika að vera hitatemprandi og heldur því líkamshitanum jöfnum. Efnið er bæði vind- og vatnsfráhrindandi ásamt því að hrinda frá sér óhreinindum. Efnið er endingargott, með styrkingu á hnjám og setusvæði. Gott stroff á ökklum og úlnliðum. Hlíf yfir rennilásnum efst sem kemur í veg fyrir að hann rekist í höku barnsins. Endurskinsmerki eru á flíkunum. Hágæða YKK rennilás.

Thermo fatnaður hentar mjög vel sem skjól gegn veðri og vindum. Hægt er að nota settið undir pollagallann í köldu rigningarveðri. Einnig er hægt að nota jakkann einan og sér sem léttan jakka. 

Frábært sett í útiveruna á góðu verði! 

100% pólýester, OEKO-TEX vottun. Bionic Finish Eco húð.

Við mælum með að taka venjulega stærð barnsins í þessu setti.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Skráðu þig á póstlistann til að fá að vita af nýjungum, tilboðum og afsláttum