
byAstrup
Tölukubbar
7.990 kr
Tölukubbarnir eru frábærir í lærdómsríkan leik. Tölustafir frá 1-10, stærð hvers tölustafs jafngildir tölugildi hans. Tvær tölur á bilinu 1-9 eru því jafnstórar og tölustafurinn 10. Tölukubbarnir æfa barnið m.a. í reikning, að skilja tölur og magn, ásamt því að barnið getur æft sig að stafla. Tölurnar koma í handhægum bómullarpoka til geymslu, sem hentar einnig vel til að fara með kubbana milli staða.
Inniheldur alls 15 tölustafi: 2 x 1, 2 x 2, 2 x 3, 2 x 4, 2 x 5, 1 x 6, 1 x 7, 1 x 8, 1 x 9 og 1 x 10.
Stærð: 2-20 cm
Efni: FSC vottaður beyki viður.
3 ára+