
That's Mine
Vegglímmiðar - Underwater friends
3.990 kr
Fallegir og vandaðir vegglímmiðar sem lífga upp á herbergið. Frábær leið til að breyta herberginu á einfaldan hátt og skapa ævintýraveröld! Vegglímmiðarnir eru framleiddir í Danmörku og eru úr textílfilmu. Efnið er með þann eiginleika að límmiðarnir virka eins og þeir séu málaðir á vegginn. Það er auðvelt að líma þá á vegginn og einnig auðvelt að taka þá af þar sem þeir skilja ekki eftir sig far á veggnum.
Notkun: Þrífðu vegginn vel áður en límmiðanum er komið fyrir. Mælt er með að setja límmiðann á sléttan flöt.
Mál: Kuðungar 5,5×14 / 7,5×8 / 9×10,5 cm
Krossfiskar 8×8 / 10×11 cm
Sæhestur 7,5×18 cm